Þjónustuskilmálar

Þjónustuskilmálar

Almenn ákvæði

Seljandi og rekstraraðili vefsíðunnar vk.is er Systur ehf, kt. 450517-1190, Brautarholt 4, 162 Reykjavík (Kjalarnes).

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru í gegnum vefverslun vk.is og skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda (neytanda) hins vegar. Kaupandi er einstaklingur sem verslar vöru til einkanota í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi þarf að vera a.m.k. 18 ára gamall til að eiga viðskipti á vk.is.

Öll viðskipti á vk.is falla undir gildandi íslensk lög, m.a. lög um neytendasamninga nr. 16/2016, lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa í sátt er unnt að bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (Neytendastofu) og að lokum íslenska dómstóla.

Seljandi veitir upplýsingar um vörur og verð eftir bestu vitund, en áskilur sér rétt til að hætta við pöntun (að hluta eða í heild) t.d. vegna rangra verðupplýsinga, breytinga á lagerstöðu eða annarra mistaka. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og með virðisaukaskatti (VSK). Seljandi áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Komi í ljós augljós villa verður kaupanda tilkynnt strax og greiðsla endurgreidd hafi hún farið fram.

Með notkun vefverslunar vk.is samþykkir kaupandi skilmála þessa. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum einhliða. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðu vk.is og gilda aðeins um viðskipti eftir þann tíma.


Vefkökur (cookies)

Vefsíðan vk.is notar vefkökur til að bæta upplifun notenda. Vefkökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru í tölvu eða snjalltæki notanda við heimsókn á vefsíðuna.

Vefkökur eru notaðar til að muna vörur í körfu, fyrri pantanir og til að bæta notendaupplifun. Flestir vafrar leyfa vefkökur sjálfkrafa, en notandi getur breytt þeim stillingum. Athugið að höfnun vefkaka getur haft áhrif á virkni vefsíðunnar.

Með notkun vefsíðunnar samþykkir notandi notkun vefkaka. Frekari upplýsingar má finna á aboutcookies.org.


Greiðsla

Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum í gegnum örugga greiðslugátt.


Afhendingarskilmálar

Seljandi býður upp á tvo afhendingarmáta:

1. Heimsending með pósti
Kaupandi getur valið að fá vörur sendar með pósti á skráð heimilisfang eða afhendingarstað. Sendingarkostnaður er reiknaður í greiðsluferlinu nema annað sé tekið fram.
Seljandi ber ábyrgð á sendingu þar til varan hefur verið afhent póstþjónustu eða kaupanda. Áætlaður afhendingartími fer eftir þjónustuaðila.

2. Afhending á lager (sótt á staðnum)
Kaupandi getur einnig valið að sækja pöntunina sjálfur á lager seljanda að:
Brautarholt 4, 162 Reykjavík (Kjalarnesi).

Kaupandi hefur samband við seljanda og þeir ákveða hentugan tíma. Oft er hægt að sækja vöruna samdægurs.
Kaupandi skal framvísa pöntunarnúmeri eða staðfestingu við afhendingu og eftir atvikum persónuskilríki.

Eftir að vara hefur verið afhent kaupanda eða póstþjónustu flyst ábyrgð og áhætta yfir til kaupanda.


Afturköllun, skil og endurgreiðsla

Kaupandi hefur 14 daga afturköllunarrétt frá afhendingu vöru, án skýringa.

Kaupandi skal tilkynna seljanda með tölvupósti innan 14 daga og skila vörunni innan 14 daga frá tilkynningu. Varan skal vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Kaupandi á rétt á fullri endurgreiðslu kaupverðs. Seljandi endurgreiðir þegar varan hefur borist eða sönnun um sendingu liggur fyrir. Kaupandi greiðir sjálfur skilakostnað nema um galla eða ranga vöru sé að ræða.


Afsláttarkóðar

Afsláttarkóðar eru settir inn í greiðsluferlinu. Aðeins eitt tilboð gildir fyrir hverja pöntun nema annað sé tekið fram.


Ábyrgð, gallar og kvartanir

Seljandi ber ábyrgð samkvæmt lögum. Komi galli fram skal kaupandi hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er. Kaupandi á rétt á viðgerð, skiptum, afslætti eða endurgreiðslu samkvæmt lögum.

Kvartanir má senda á: vk@vk.is


Persónuvernd

Seljandi vinnur persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018. Upplýsingar eru aðeins notaðar til afgreiðslu pantana og þjónustu og ekki afhentar þriðja aðila nema með samþykki eða lögum samkvæmt.


Varnarþing

Varnarþing vegna skilmála þessa er hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.


Dagsetning og gildi

Skilmálar þessir voru síðast uppfærðir 08.02.2026 og gilda frá þeim degi. Skilmálarnir eru á íslensku og lúta íslenskum lögum.