Skilaréttur

Afhendingarskilmálar

Seljandi býður upp á tvo afhendingarmáta:

1. Heimsending með pósti
Kaupandi getur valið að fá vörur sendar með pósti á skráð heimilisfang eða afhendingarstað. Sendingarkostnaður er reiknaður í greiðsluferlinu nema annað sé tekið fram.
Seljandi ber ábyrgð á sendingu þar til varan hefur verið afhent póstþjónustu eða kaupanda. Áætlaður afhendingartími fer eftir þjónustuaðila.

2. Afhending á lager (sótt á staðnum)
Kaupandi getur einnig valið að sækja pöntunina sjálfur á lager seljanda að:
Brautarholt 4, 162 Reykjavík (Kjalarnesi).

Kaupandi hefur samband við seljanda og þeir ákveða hentugan tíma. Oft er hægt að sækja vöruna samdægurs.
Kaupandi skal framvísa pöntunarnúmeri eða staðfestingu við afhendingu og eftir atvikum persónuskilríki.

Eftir að vara hefur verið afhent kaupanda eða póstþjónustu flyst ábyrgð og áhætta yfir til kaupanda.


Afturköllun, skil og endurgreiðsla

Kaupandi hefur 14 daga afturköllunarrétt frá afhendingu vöru, án skýringa.

Kaupandi skal tilkynna seljanda með tölvupósti innan 14 daga og skila vörunni innan 14 daga frá tilkynningu. Varan skal vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Kaupandi á rétt á fullri endurgreiðslu kaupverðs. Seljandi endurgreiðir þegar varan hefur borist eða sönnun um sendingu liggur fyrir. Kaupandi greiðir sjálfur skilakostnað nema um galla eða ranga vöru sé að ræða.


Afsláttarkóðar

Afsláttarkóðar eru settir inn í greiðsluferlinu. Aðeins eitt tilboð gildir fyrir hverja pöntun nema annað sé tekið fram.


Ábyrgð, gallar og kvartanir

Seljandi ber ábyrgð samkvæmt lögum. Komi galli fram skal kaupandi hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er. Kaupandi á rétt á viðgerð, skiptum, afslætti eða endurgreiðslu samkvæmt lögum.

Kvartanir má senda á: vk@vk.is